Sólbæjarblogg
Önnur blogg
30.03.2007 21:15:30 / Ella

Jahérna he´r

Rosalega er langt síðan ég hef komið hingað ! Ekki einu sinni skrifað neitt á loðnuvertíðinni... bara haft svo mikið að gera.  allt fínt að frétta, er að vinna (www.natturulega.is), byggja við húsið, og halda þessu heimili gangandi.  Það stendur upp úr þessa vikuna að ég fór á þvílíkt skemmtilegt og fróðlegt námskeið um  markaðssetningu á netinu.  Hvernig við gerum heimasíður þannig að þær finnist á leitarvélunum oflr..  Ég á töluvert verk framundan að laga natturulega.is   Forsíðan er víst alls ekki söluleg !  

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 09:41:48 / Ella

Salka skrifar

Við vorum svo dugleg í skólanum að pabbi bauð okkur í sund í gærkvöldi og svo á videoleiguna.  Nú erum við í fríi fram á mánudag.Í dag ætla ég að leika mér.

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 22:21:14 / Ella

Nýtt gestarúm

Nú geta vinir og vandamenn um land allt fengið að gista hjá okkur í þessu fína rúmmi sem Hrafn var að fá. Hann er til í að ganga úr rúmmi fyrir ykkur, kannski ekki í hverri viku, en við eigum nú ekki von á því að þið verðið svo þétt á ferðinni...:haha:




» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 21:33:07 / Ella

Mergjarður leikur

Nú var ég Hrafn að prófa nýjan pc leik sem er næstum því eins og runscape. Hann var skemmtilegur, fjörugur og mergjaður.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 11:20:02 / Ella

Til hamingju Ísland... ótrúlegt hvað þetta glymur í hausnum á manni.

Hvaða, hvaða ekkert blogg um helgin.  Var á námskeiði, Grænni skóga, föstudag og laugardag að læra um grisjun skóga.  En það er náttúrulega þarfaþing, fyrir ólétta konu gengna 5 mánuði, að kunna að saga niður tré með keðjusög, og þá réttu trén..  Kemur sér afar vel :$    

Hemmi búinn að vera óvenju mikið heima um helgina, næstum bara fyrir hérna, en hann var nú lasinn greiið.  En út á það fékk hann þvílíkt dekur á konudaginn, þetta var alveg omvent. 

Hrafn og Salka gistu hjá vinum sínum á laugardagskvöldið,  þannig við  Hemmi og Hekla vorum bara ein hér á Eurovisionkvöldinu.  Sáum leikritið Silvía Nótt, ótrúlegt framlag frá okkur þetta árið, þetta er náttúrulega þvílíkt leikrit allt saman, viðtöl og annað.  Ef þetta kemst alla leið að þá verður þetta amk eftirtektarvert í Evrópu og mikil landkynning,  spurning hvort þetta sé jákvæð landkynning. Svo margt sniðugt á Íslandi ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 09:57:56 / Ella

Myndir

texti yfir mynd

Þá tókst það loksins að koma inn mynd.

Hún Hekla Karen er voða kát með Stubbabúninginn og mesta furða að hún skulu líka vilja hafa höfuðfatið.

Það verður ekki svona auðvelt með að finna búning á þau eldri, þau gera meiri kröfur.  Hrafn vill helst vera það sama ár eftir ár, karete maður (í kínverskum náttslopp) ! 


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 22:04:18 / Ella

Myndavesen

Nú er ég búin að fatta þetta með myndirnar, en reyndar er eitthvað error hjá bloggcentral svo ég get ekki sett inn myndir, en ég reyni aftur á morgun að setja inn myndir. 

Svo er líka hægt að fara inná

http://www.picturetrail.com/solbaer

og skoða Sólbæjarbúana. 

Nú eru þau Hrafn og Sigrún komin upp í mitt rúm og ætla að fá að gista hjá mér í nótt því Hemmi var að fara í bæinn.  Eins gott að bumbubúinn fá ekki spark frá þeim :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 17:09:03 / Ella

Hrafn skrifar um Liverpool

Í gær vann Liverpool 1-0 þá í Arsenal.   Luis Garcia skoraði á 82. mínútu.  Liverpool hafði miklu fleiri færi, rosa góður leikur.  Það var víti, en Gerard klúðraði.  Garcia var bara búinn að vera inná í 2 mínútur.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 15:21:19 / Ella

Algjör stubbur

Já áfram með Sólbæjarbloggið...  Hekla Karen búin að vera lasin síðan á sunnudag, en nú er hún að hressast.  Fórum í heimsókn í morgun til Lindu og Hermanns og fengum lánaðan þennan fína búning sem að Hekla er hæst ánægð með enda horft aðeins á stubbana í veikindunum og finnst þeir mjög skemmtilegir.:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 18:54:03 / Ella

nú ár er liðið síðan síðast

Við erum nú meiri bloggararnir hér í Sólbæ, heilt ár síðan við skrifuðum síðast :!:


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2005 19:04:02 / Ella

Ósk mín skærasta ....er að eignast kærasta...

Jæja nú erum við Hekla Karen sestar við bloggið og hún er voða spennt að klóra í borðið, tölvuna og hendurnar á mér og smá slef lekur á takkaborðið, kemur ekki að sök.  Hrafn og Salka að detta inn, rjóð í kinnum eftir að hafa verið úti á svelli í allan dag.  Hið fínasta svell yfir 1/4 hluta fótboltavallarins.  Salka á skautum en Hrafn lætur strigaskóna duga.

En Salka toppaði daginn er hún kom heim eftir skóla og tilkynnti það að hún ætti kærasta, hann heitir Haukur og býr hér í Hagatúninu. :$ Hann kemur á eftir, við ætlum að leika á eftir.  Er þetta nú ekki amk 10 árum of snemmt ! UFFF hvernig verður þetta.  En henni þótti nú samt vænlegra að koma með okkur Hrafni og Heklu til Ernu og Söndru.  Spurning hvernig gengur í framtíðinni að stinga upp á einhverju meira spennandi en að hitta stráka.

(Hún féllst síðan á að kalla hann vin, þau hafa jú bara verið saman í hópastarfi í 5 daga í Nesjaskóla !;))


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.02.2005 17:55:46 / Ella

Trallallalla

Nú geta vinir og vandamenn um heim allann fylgst með okkur hér í Sólbæ og þá sérstaklega krakkaormunum.:evil: 

Og heimilisfaðirinn, nú getur hann líka kíkt á bloggið í Sólbæ og athugað hvort ekki sé allt með feldu heima fyrir, það getur nú verið þægileg þegar loðnuvertíðin stendur sem hæðst og varla er tími til að sofa.  Eða þegar maður er erlendis..

Já þetta blogg á sko aldeilis eftir að koma sér vel og upplýsingaflæðið í stórfjölskyldunni eftir að stórbatna .. verst að Hadda langaamma er ekki með tölvu , henni gæti nú þótt gott að frétta af okkur, tala nú ekki um þegar hún nær ekki í okkur í síma :) 

Best að halda áfram að stilla herlegheitin... en hvernig setur maður inn myndir, er það kannski ekki hægt ?


» 5 hafa sagt sína skoðun